Pínulitli tónsprotinn - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Pínulitli tónsprotinn - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Harpa | Flói, Austurbakki 2, 101 Reykjavik Kort

lau 20. feb 2027 14:00

Pínulitli tónsprotinn heldur tvenna fjölskyldutónleika laugardaginn 20. febrúar, kl. 14 & 15 í Flóa.

Pínulitli tónsprotinn er sniðinn að allra yngstu áheyrendum Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Tónleikarnir eru um hálftímalangir og haldnir í Flóa, opnu og fallegu umhverfi í Hörpu. Hljómsveitin leikur fallega tónlist og skemmtileg lög sem margir þekkja. Kynnir er enginn annar en Bolli Könnuson Le Stell og Maxímús Músíkús kíkir að sjálfsögðu í heimsókn. Áhersla er lögð á létt og vinalegt andrúmsloft og nánd barnanna við hljómsveitina. Gott er að koma með púða fyrir þau minnstu til að sitja á.

Aðgangur er ókeypis, hægt verður að bóka miða þegar nær dregur tónleikum.

Efnisskrá

Létt og skemmtileg tónlist fyrir yngstu tónleikagestina

Hljómsveitarstjóri

Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir

Kynnir

Níels Thibaud Girerd, Bolli Könnuson Le Stell