Opnun I Svart-hvítt

Opnun I Svart-hvítt

Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort

fös 18. sep 2026 16:00

Verið velkomin á opnun sýningarinnar Svart-hvítt í Skotinu á Ljósmyndasafni Reykjavíkur föstudaginn 18. september kl. 16-18. Veitingar í boði.

Svart-hvítt nefnist sjötta sýning félaga úr Fókus félagi áhugaljósmyndara sem mun taka yfir sýningarrýmið SKOTIÐ árið 2026.

Í ár eru 200 ár síðan fyrsta varanlega ljósmyndin var tekin (árið 1826) af franska uppfinningamanninum Nicéphore Niépce með tinplötu húðaðri með tegund af náttúrulegu asfalti uppleystu í lavenderolíu.

Á áratugunum sem fylgdu þar á eftir prófuðu brautryðjendur ljósmyndunar mismunandi aðferðir til að gera svart-hvítar myndir og betrumbættu ferlið. Með nýrri tækni Daguerre 1839 tekur ljósmyndun svo flugið en við það ár er upphaf ljósmyndunar oftast miðað.

Þrátt fyrir tilkomu litljósmyndunar um miðja 20. öld var svart-hvít ljósmyndun áfram notuð af mörgum ljósmyndurum vegna listrænnar hæfni hennar.

Svart-hvít ljósmyndun er sérstök að því leyti að hún beinir sjónum að formum, áferð, ljósi og skuggum í stað lita. Með því að fjarlægja truflandi litbrigðin breytir hún bókstaflegri senu í listræna túlkun, bætir við tímalausum tilfinningum, djúpri dramatík og öflugri fókustilfinningu fyrir viðfangsefninu.

Sýnendur eru:

• Anna Soffía Óskarsdóttir

• Elín Laxdal

• Flóki Dagsson

• Guðmunda Kristín Guðmundsdóttir

• Jóhanna Esjudóttir

• Regina Rist

• Þóra Halldóra Björgvinsdóttir

Sýningar FÓKUS árið 2026 verða alls sjö með mismunandi þemu. Sýnendur verða 47 talsins og hver sýning stendur yfir í sex vikur.

Það er spennandi ár framundan – ekki missa af forvitnilegu og fjörugu ári í Skotinu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur!📸

🎟 Aðgangur er ókeypis.

♿ Gott aðgengi er að Ljósmyndasafninu. Hjálparhundar eru velkomnir.

🚌 Næstu stoppistöðvar Strætó eru Hafnarhús, Lækjartorg og Ráðhúsið (2–5 mín. gangur).

🚗 Gjaldskyld bílastæði eru við safnið og í nærliggjandi bílastæðahúsum.