Opnun – Hugrenningar og Vatnsins streymi

Opnun – Hugrenningar og Vatnsins streymi

Hafnarborg, Strandgata 34, 220 Hafnarfjörður Kort

fim 12. nóv 2026 18:00

Bústaðu viðburðinn!

Fimmtudaginn 12. nóvember kl. 18 bjóðum við ykkur velkomin á opnun tveggja nýrra sýninga í Hafnarborg en þá kynnum við Hugrenningar eftir Styrmi Örn Guðmundsson og Vatnsins streymi eftir Beili Liu. Við opnunina mun Styrmir Örn jafnframt flytja nýjan gjörning, sem verður í framhaldinu sýndur sem vídeóverk á sýningunni.

Styrmir Örn Guðmundsson: Hugrenningar

Á sýningunni koma saman tveir þræðir sem einkennt hafa listsköpun Styrmis Arnar frá upphafi: teikningin og gjörningurinn. Í teikningum sínum vinnur listamaðurinn eins og smiður, skipulega og innan fasts ramma myndflatarins. Í gjörningum er hann hins vegar líkari garðyrkjumanni sem lætur umhverfi og andrúmsloft ráða för. Á sýningunni má sjá stórar teikningar sem orðið hafa til á síðustu tíu árum, en þær hanga úr lofti sýningarsalarins og mynda innsetningu sem áhorfendur geta hreyft sig um. Innsetningin verður jafnframt sviðsmynd fyrir gjörning listamannsins og gerir Styrmir þannig tilhlaup að því að sameina ólíkar aðferðir teikningarinnar og gjörningsins með því að finna snertiflöt milli hins kyrra og kvika.

Sýningarstjóri er Heiðar Kári Rannversson.

Styrmir Örn Guðmundsson (f. 1984) vinnur með gjörninga, teikningar, skúlptúr og tónlist í listsköpun sinni, þar sem ólíkir miðlar og form fléttast saman í eina frásögn. Það sem byrjar sem teikning á pappír þróast jafnvel yfir í skúlptúr eða tónlist, sem verður svo að efniviði fyrir gjörning. Styrmir Örn stundaði nám við Gerrit Rietveld Academie og lauk framhaldsnámi frá Sandberg Instituut í Amsterdam árið 2012. Verk hans hafa verið sýnd víða á undanförnum árum, bæði hérlendis og erlendis.

Beili Liu: Vatnsins streymi

Vatnið gengur líkt og rauður þráður um verk Beili Liu, þar sem hún beinir sjónum sínum jafnt að ám og úthöfum, fjarlægum ströndum og þeim efniviði sem berst þar á milli. Á sýningunni Vatnsins streymi getur að líta verk sem byggjast á yfirstandandi listrannsóknum Liu á norðurslóðum og nærliggjandi svæðum, þar sem hún kannar hvernig við erum samofin náttúrunni og hversu viðkvæmt samband okkar við hana er. Sýningin hverfist um samnefnda innsetningu listamannsins, sem samsett er úr brotum úr plasti, sem hafa skolast til, veðrast og máðst af náttúruöflunum. Hafstraumar hafa borið þessi brot langar leiðir og bera þau jafnframt vitni um þau djúpstæðu áhrif sem athafnir mannsins hafa haft á jörðina og vistkerfi hennar.

Sýningarstjóri er Hólmar Hólm.

Beili Liu er bandarísk myndlistarkona, fædd í Kína og búsett í Austin, Texas, þar sem hún er prófessor við University of Texas at Austin. Verk hennar hafa verið sýnd víða um heim og hefur hún hlotið fjölda styrkja og viðurkenninga fyrir listsköpun sína. Liu dvaldi sem gestalistamaður í Hafnarborg frá desember 2023 til janúar 2024 í tengslum við listrannsóknir sínar á norðurslóðum. Hún snýr nú aftur til safnsins en í ár eru 40 ár liðin frá því að gestavinnustofa Hafnarborgar, sú elsta sinnar tegundar á Íslandi, hóf starfsemi sína.

Aðgangur ókeypis – sjáumst í Hafnarborg.