Í samvinnu við Borgarbókasafnið býður Opni leikskóli Memmm til leiks alla miðvikudaga kl. 10:00-12:00 á bókasafninu Gerðubergi, efri hæð.
Skráning er óþörf og öll velkomin en stundirnar eru hugsaðar fyrir þau sem eru heima með lítil börn á aldrinum 0-5 ára.
Opni leikskóli Memmm eru félagasamtök sem vinna að fjölskylduvænna samfélagi. Í Opna leikskóla Memmm skapast tækifæri til þess að efla tengsl og stækka tengslanet. Reglulega er boðið upp á fræðslu er varða fyrstu ár barnsins.
Dagskrárliðir eru í stuttu máli samvera, leikur, söngstund og alltaf heitt á könnunni.
Komdu og vertu Memmm!
Fyrir nánari upplýsingar:
memmmplay@gmail.com
Opni leikskóli Memmm í Gerðubergi
Borgarbókasafnið Gerðubergi, Gerðuberg 3, 111 Reykjavík Kort
mið 23. sep 2026 10:00