Opin sálmaæfing
Hallgrímskirkja, Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavík Kort
sun 4. okt 2026 10:30
Opin sálmaæfing
Langar þig til að syngja með í messum en þekkir ekki alltaf lögin? Þá er þetta kjörið tækifæri til að undirbúa sálma messunnar. Við æfum saman sálmana við Frobenius kórorgel Hallgrímskirkju áður en messan hefst.
Opnar sálmaæfingar verða kl. 10:30 fyrir messu sunnudagana 4. október og 22. nóvember í Hallgrímskirkju. Messan hefst kl. 11.
Björn Steinar Sólbergsson, organisti og tónlistarstjóri kirkjunnar, verður við orgelið ásamt félögum úr Kór Hallgrímskirkju.
Fyllum kirkjuna af söng!
Ókeypis aðgangur og öll hjartanlega velkomin.
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR