Norskir þjóðdansar - opin vinnustofa
Molinn Ungmennahús, Hábraut 2, 200 Kópavogur Kort
lau 19. sep 2026 10:00
Vinnustofa í norskum þjóðdönsum
Ingrid Lingaas Fossum og Vegar Vårdal eru reyndir þjóðdansarar og þjóðdansakennarar, ásamt því að vera meðal fremstu þjóðlagatónlistarmanna Noregs.
Í tilefni af VÖKU þjóðlistahátíð 2026 verður haldin opin vinnustofa í norskum þjóðdönsum þar sem Ingrid og Vegar leiða okkur í gegnum vel valin spor, með stuðningi Vegard Hansen, harmoníkuleikara.
Vinnustofan er haldin í Molanum, Hábraut 2 á menningarholtinu í Kópavogi, laugardaginn 19. september kl. 10:00-11:00.
VAKA þjóðlistahátíð fer fram dagana 13.– 19. september 2026 í Kópavogi. Á hátíðinni mætast tónlist, dans, handverk, sagnalist og kveðskapur í fjölbreyttri dagskrá fyrir forvitna gesti á öllum aldri. VAKA leggur áherslu á að gera sem flestum kleift að sækja viðburði hátíðarinnar. Því eru í boði þrír mismunandi verðflokkar á flesta viðburði og velur hver gestur það verð sem hentar best. Tryggið ykkur hátíðarpassa sem veitir ykkur aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar.
Allar upplýsingar um hátíðina má finna á www.vakareykjavik.is og á samfélagsmiðlum Vökufélagsins.
Nánar um hátíðarviku: https://www.facebook.com/events/2881917765475464