Nodebook: Ritleiðangur

Nodebook: Ritleiðangur

Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort

sun 4. okt 2026 13:00

Nodebook Quests er röð ævintýralegra dagbókar- og skrifvinnustofa þar sem könnun og upplifun verða að texta. Í hvert skipti bíður þátttakenda nýr leiðangur — sem leiðir okkur út í borgina, um bókasafnið eða stundum miklu nær: inn á við.
Engin reynsla af skrifum er nauðsynleg — komdu bara með forvitnina og sjáðu hvert leiðangurinn leiðir þig. Eftir því sem líður á seríuna verður textum sem verða til í leiðöngrunum safnað saman í sameiginlega Nodebook-útgáfu (með leyfi hvers höfundar.)
Fyrsta ritunarverkefnið er leyndarmál þar til viðburðurinn hefst. Þegar þú mætir á staðinn færðu úthlutað verkefni og leggur því næst af stað í lítinn leiðangur og snýrð svo aftur til að færa það sem þú uppgötvaðir í orð.
👪 Opið öllum á öllum aldri.
☕ Boðið verður upp á snarl og kaffi á staðnum.
Skoða nánar: nodebook.cc
Instagram: @nodebook.cc