Nína Margrét leikur Schubert - Sígildir sunnudagar
Harpa | Norðurljós, Austurbakki 2, 101 Reykjavik Kort
sun 22. nóv 2026 16:00
Á þessum tónleikum flytur Nína Margrét hin ástsælu píanóverk Franz Schubert Impromptus óp. 90 og óp. 142. Impromptu Schuberts eru meðal þekktustu píanóverka tónskáldsins og líkt og sönglög hins austurríska snillings, einkennast af himneskum laglínum og tilfinningaþrungnu hljómaferli. Nína Margrét er í fremstu röð íslensks tónlistarfólks og hefur á ferli sínum leikið á tónleikum víða um heim og hljóðritað fyrir ljósvakamiðla og útgáfufyrirtæki.
https://www.harpa.is/vidburdir/21831
https://www.youtube.com/@NinaMargretGrimsdottir
https://www.facebook.com/nmgrimsdottir/
https://www.instagram.com/ninamargretgrimsdottir/
Dr. Nína Margrét Grímsdóttir er í fremstu röð klassískra píanóleikara landsins. Hún lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík, LGSM prófi frá Guildhall School of Music and Drama, meistaraprófi frá City University í London, Professional Studies Diploma frá Mannes College of Music í New York og doktorsprófi í píanóleik frá City University of New York. Einleiks- og kammertónleikar á Íslandi, Evrópu, Bandaríkjunum, Kanada, Japan og Kína. Útgefnir fimm geisladiskar fyrir Naxos, BIS, Acte Préalable og Skref sem allir hafa hlotið frábæra dóma í leiðandi tónlistartímaritum m.a. Gramophone Awards Issue, BBC Music Magazine, Glasgow Herald, Crescendo Magazine, Xi'an Evening News, classicstoday.com and High Fidelity. Nína Margrét starfar við Listaháskóla Íslands, Tónlistarskólann í Kópavogi, Tónskóla Sigursveins og er forseti WPTA Iceland.