NÁTTFATABÍÓ: PADDINGTON
Háskólabíó, Hagatorg, 101 Reykjavík Kort
sun 27. sep 2026 10:30
UngRIFF býður fjölskyldum í ógleymanlega bíóferð þar sem Háskólabíói verður umturnað í huggulegt náttfatapartý! 🧸🌙
Ekki fara úr náttfötunum í morgunsárið – farðu bara í skó, gríptu uppáhalds bangsann þinn og mættu beint í bíó. Sýningin fer fram í Háskólabíó þar sem stórum bíósal verður breytt í eitt risastórt náttfatapartý með mjúkum púðum, teppavirki og öllu tilheyrandi. Kynnir morgunsins er enginn annar en leikarinn Siggi Þór sem talar fyrir Paddington á íslensku.
Einnig mætir sérstakur leynigestur til að skemmta börnunum.🐻
🎬 Djúpt í iðrum Perú uppgötvar breskur landkönnuður nýja bangsategund sem getur talað mannamál og elskar marmelaði. Mörgum árum síðar mætir lítill bangsahvolpur til Lundúna á Paddington lestarstöðinni þar sem Brown fjölskyldan tekur hann að sér – upphefst þá einstakt ævintýri þar sem reynir á kænsku og góðsemi bangsans og nýju vina hans.
Myndin kom fyrst í bíóhús á Íslandi árið 2014 og fékk strax einmæla lof gagnrýnenda fyrir að henta áhorfendum á öllum aldri. Miðasala er hafin og það er um að gera að tryggja sér sæti fyrir alla fjölskylduna strax.
Þar sem sýningin er árla verður sérstakt tilboð í sjoppunni á morgunvænu góðgæti, ásamt rjúkandi heitu kaffi frá Kaffitár fyrir fullorðna fólkið.☕️
Hér er á ferð einstakt tækifæri til að byrja daginn í ævintýralegustu og huggulegustu bíóferð allra tíma þar sem kveikt verður á töfrunum strax snemma dags.
Ekki missa af þessari einstöku samverustund fyrir alla fjölskylduna – og einstöku tækifæri til að fara ekki úr náttfötunum fyrr en um miðjan dag!
📅 27. september kl. 10:30
📍 Háskólabíó
🎬 Myndin verður sýnd með íslensku tali
Miðasala fer fram á RIFF.IS
🎟️ Barnamiði: 12 ára og yngri
👨👩👧👦 Fjölskyldumiði: 4 einstaklingar, óháð aldri