Námskeið í kertamálun
Borgarbókasafnið | Menningarhús Úlfarsárdal, Úlfarsbraut 122, 113 Reykjavík Kort
mið 18. nóv 2026 18:00
🕯️🎨🖌️ Verið velkomin í notalega föndurstund á bókasafninu þar sem þátttakendur læra að handmála kerti með akrýlmálningu í góðum félagsskap. Allt efni er á staðnum og nóg verður af góða skapinu en það er eflaust gott að taka sitt með líka! Fullkomið tækifæri til kynnast nýju dundi fyrir aðventuna.
Heitt kaffi og te í boði fyrir þau sem vilja.
Thelma Lind er forfallinn fagurkeri og stemmningskona sem leggur stund á allt dund. Hún er með sjónlistarpróf frá Myndlistarskóla Reykjavíkur en er að öðru leyti sjálflærður listamaður sem unir sér best við pottana eða með pensil í hendi.
Þú getur fylgt henni á instagram hér:
https://www.instagram.com/thelmadund
Námskeiðið er ókeypis en skráning er nauðsynleg. Bóka pláss hér: https://borgarbokasafnid.enterpriseappointments.com/v2/#book-class/service/773