Mógil og Orri Huginn – Aðventa í stofunni hjá Gunnari

Mógil og Orri Huginn – Aðventa í stofunni hjá Gunnari

Gunnarshús, Dyngjuvegur 8, 104 Reykjavík Kort

fös 11. des 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Mógil og Orri Huginn – Aðventa í stofunni hjá Gunnari

Hljómsveitin Mógil býður til einstakrar aðventustundar í stofunni hjá Gunnari Gunnarssyni, þar sem tónlist og bókmenntir fléttast saman í hlýlegu umhverfi.

Á tónleikunum flytur Mógil tónlist af plötunni Aðventa, sem er innblásin af samnefndri skáldsögu Gunnars Gunnarssonar (1889–1975). Sagan segir frá Benedikt og ferðalagi hans um hálendi Íslands í leit að týndu fé.

Orri Huginn Ágústsson leikari les valin brot úr sögunni og gefur orðum Gunnars nýtt líf í einstökum hljóðheimi Mógils.

Þessi sígilda saga öðlast nánd í stofunni þar sem Gunnar bjó og starfaði. Þar renna orð, tónar og umhverfi saman í heild sem býður gestum að staldra við, hlusta og hverfa um stund inn í heim Aðventu.

Mógil skipa:
Heiða Árnadóttir - söngur
Hilmar Jensson -  gítar
Kristín Þóra Haraldsdóttir - víóla
Eiríkur Orri Ólafsson – trompet
Upplestur - Orri Huginn Ágústsson, leikari.