Móðurljósið skæra

Móðurljósið skæra

Langholtskirkja, Sólheimar 13, 104 Reykjavík Kort

sun 6. des 2026 16:00

Bústaðu viðburðinn!

Móðurljósið skæra

Þegar dagarnir eru stystir leitum við ljóssins. Í ár syngur Söngfjelagið um móðurljósið skæra, ljósið sem kviknar í myrkrinu og ber með sér hlýju, von og nýtt upphaf. Móðuraflið er rauði þráðurinn í efnisskránni. Það birtist í Maríu mey, móður jólanna, og í öllum þeim mæðrum sem vaka yfir börnum sínum en líka í hinni ógurlegu Grýlu sem á sinn fasta sess í íslenskum jólum.


Við ferðumst í söng frá Íslandi til Englands, Írlands og Noregs, suður til Brasilíu og austur til Kýpur. Blíð vögguljóð og fornir helgisöngvar mæta þar dillandi danstakti og gáskafullum þjóðlögum og nýrri lögum. Við bjóðum upp á litríkt og fjölbreytt ferðalag þar sem friður og fögnuður haldast í hendur.


Áralöng hefð er fyrir jólalögum Söngfjelagsins og í ár verður frumflutt nýtt jólalag sem Hreiðar Ingi Þorsteinsson tónskáld samdi sérstaklega fyrir kórinn við ljóð Jakobínu Sigurðardóttur.


Stjórnandi: Lilja Dögg Gunnarsdóttir

Slagverk: Kristofer Rodriques Svönuson

Kontrabassi: Örn Ýmir Arason

Píanó: Kjartan Valdemarsson

Gítar: Stefán Hjörleifsson