Misþyrming, Morpholith & Afturganga í Tónabíó
RVK Bruggfélag Tónabíó, Skipholt 33, 105 Reykjavík Kort
lau 31. okt 2026 19:00
Misþyrming, Morpholith og Afturganga bjóða upp á öfgarokkstónleika á Hrekkjavöku í Tónabíó.
Svartmálmur, dómsmálmur og dauðarokk mun ráða ríkjum í Tónabíó 31. október.
Misþyrming hafa verið með stærstu svartmálmshljómsveitum landsins frá því að fyrsta breiðskífa þeirra, Söngvar elds og óreiðu, kom út fyrir ellefu árum og hafa spilað á helstu þungarokkshátíðum austan Atlantshafsins.
Morpholith hafa verið kyndilberar dómsmálmsins frá þeirra fyrstu tónleikum og verður allt sett á 11 á þessu kvöldi.
Afturganga er upprennandi dauðarokkssveit sem skartar reynsluboltum úr senunni.
Forsala er á Glaze og kostar aðeins 4990 kr á þennan drungalega viðburð. Einnig verður hægt að kaup við hurð á 6000 kr.