Mikilvægi hvala í vistkerfi sjávar- Málþing og Sýningaropnun
Veröld - hús Vigdísar, Brynjólfsgata 1, 107 Reykjavík Kort
mið 23. sep 2026 14:00
Mikilvægi hvala í vistkerfi sjávar
Loftskeytastöðin, Sjálfbærnistofnun HÍ og Hvalavinir – vernd hafsins bjóða til málþings um mikilvægi hvala í vistkerfi sjávar, miðvikudaginn 23. september kl. 14:00–16:00 í Auðarsal, Veröld – húsi Vigdísar.
Að málþingi loknu, kl. 16:00–18:00, verður opnuð sýning Ingu Lísu Middleton, Hafið á öld mannsins í Loftskeytastöðinni.
Markmið málþingsins er að varpa ljósi á hlutverk hvala í vistkerfi sjávar og tengsl þeirra við líffræðilega fjölbreytni, hringrás næringarefna, frumframleiðni, kolefnisbindingu og heilbrigði hafsins. Einnig verður fjallað um verndun hvala og sjávar, dýravelferð og þær siðferðilegu spurningar sem hvalveiðar vekja.
Dagskrá málþings:
Á ferð um heimshöfin: Ferðir hvala raktar
Sara M. Maxwell PhD, prófessor í vistfræði við Háskóla Íslands fjallar um hvernig gervihnattamerkingar hafa aukið skilning okkar á ferðum hvala um heimshöfin og hvernig ferðir þeirra tengja saman búsvæði, lönd og menningarheima.
Áhrif úrgangs skíðishvala á frumframleiðni
Guðjón Már Sigurðsson PhD, sjávarlíffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun fjallar um nýlega rannsókn þar sem áhrif úrgangs hvala á frumframleiðni á hafsvæðunum í kringum Ísland voru metin.
Sérstaða hvalveiða
Henry Alexander Henryson PhD, heimspekingur
Algengt viðhorf er að hvalveiðar séu í grundvallaratriðum sambærilegar við skotveiðar á öðrum spendýrum. Henry skoðar þetta viðhorf og hvað, ef eitthvað, geri hvalveiðar sérstakar frá siðferðilegu sjónarhorni.
Hafið á öld mannsins – Hvalir, svifþörungar og samspil lista og vísinda
Inga Lísa Middleton, myndlistarkona fjallar um vísindalega þekkingu að baki verkum sínum, samspil hvala og svifþörunga og hvernig myndlist getur gert flókin og oft ósýnileg tengsl vistkerfis sjávar sýnileg og áþreifanleg.
Eftir erindin verða pallborðsumræður og spurningar úr sal.
Fundarstjóri: Katrín Oddsdóttir.
Sýningaropnun | kl. 16:00–17:00
Að málþinginu loknu verður opnuð sýning Ingu Lísu Middleton, Hafið á öld mannsins í Loftskeytastöðinni
Í handprentuðum blámyndum (cyanotype) teflir hún saman stærstu og smæstu lífverum hafsins, hvölum og svifþörungum og varpar ljósi á samspil þeirra, meðal annars í tengslum við súrefnisframleiðslu, hringrás næringarefna og kolefnisbindingu. Verkin beina jafnframt sjónum að áhrifum plastmengunar á vistkerfi sjávar.
📅 23. september 2026
🕑 Málþing kl. 14:00–16:00
📍 Auðarsalur, Veröld – hús Vigdísar
🎨 Sýningaropnun kl. 16:00–17:00 | Loftskeytastöðin
Hlökkum til að sjá ykkur!
Loftskeytastöðin, Sjálfbærnistofnun HÍ & Hvalavinir – vernd hafsins