MH 60 ára
Undirheimar |Menntaskólinn við Hamrahlíð, Hamrahlíð 10, 105 Reykjavík Kort
lau 26. sep 2026 10:00
Okkar elskaði MH fagnar sextíu ára afmæli með pompi og pragt laugardaginn 26. september. Afmælisveislan stendur frá tíu til tíu, hefst með morgunverði a Matgarði og lýkur með stórtónleikum á Miðgarði og þar a milli verður fjölbreytt dagskrá vítt og breitt um skólann, leiðsagnir, sögusýningar og ýmsar uppakomur. Við hvetjum fyrrum nemendur og öll sem bera taugar til MH til að láta orðið berast, nýta jafnvel tækifærið og hóa saman borðinu, bekknum, dimmisjónhópnum eða árganginum og fylkja liði í afmæli.