Markþjálfahjartað: ADHD, einhverfa og listin að mæta ólíkum markþegum
Míró markþjálfun og ráðgjöf - Lifsgæðasetur St.Jó, Suðurgata 41, 220 Hafnarfjörður Kort
fim 5. nóv 2026 17:00
Markþjálfahjartað í samstarfi við ICF býður þér til Hafnarfjarðar á áhugavert erindi með Sigrúnu Jónsdóttur, þroskaþjálfa og ADHD- og einhverfumarkþjálfa.
Sigrún hefur sérhæft sig í markþjálfun fólks með ADHD og einhverfu og vinnur út frá styrkleikamiðaðri nálgun þar sem sjálfsþekking, sjálfræði og einstaklingsbundnar þarfir eru í forgrunni.
Eru góðar markþjálfunarspurningar alltaf góðar fyrir alla?
Í erindinu fjallar Sigrún um taugafjölbreytileika, ADHD og einhverfu og hvernig skilningur á ólíkri taugagerð getur breytt því hvernig við hlustum, spyrjum og styðjum markþega.
Hún skoðar einnig áhrif og ávinning markþjálfunar, mikilvægi orðræðu og hvernig markþjálfar geta aðlagað nálgun sína að ólíkum þörfum.
Sigrún þekkir ADHD af eigin raun og segir á heimasíðu sinni, miro.is:
„Ég þekki af eigin raun ADHD og hversu áhrifarík ADHD markþjálfun er fyrir þá sem vilja yfirstíga hindranir og gera jákvæðar umbreytingar á lífi sínu.“
Komdu og vertu með okkur í fræðandi og áhugaverðu samtali um taugafjölbreytileika og markþjálfun.
Þekking sem víkkar sjónarhornið og nýtist í samtalinu við næsta markþega.