Mannréttindi í framkvæmd – Málþing í tilefni af ársafmæli lögfestingar SRFF
Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
mán 9. nóv 2026 08:30
ÖBÍ réttindasamtök standa fyrir málþingi mánudaginn 9. nóvembert 2026 í tilefni af því að þá verður ár liðið frá því að Alþingi lögfesti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Aðgangur er gjaldfrjáls og skráning fer fram hér: https://www.obi.is/skraning-mannrettindi-i-framkvaemd/
Aðalfyrirlesari verður Prof. Dr. jur. Markus Schefer, LL.M., sem er einn helsti sérfræðingur heims um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Markus er prófessor í stjórnskipunarrétti og stjórnsýslurétti við Háskólann í Basel í Sviss og fyrrum nefndarmaður í nefnd Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra munu ávarpa málþingið.
Málþingið fer fram í Hörpu og fundarstjóri verður Kári Hólmar Ragnarsson.
Viðburði verður einnig streymt á heimasíðu www.obi.is. Það verða rit- og táknmálstúlkar á staðnum. Aðgengi er talið gott í Rímu fundarsal í Hörpu á jarðhæð.
Nánari dagskrá verður auglýst síðar.