Málstofa: Total Defence and Comprehensive Security – gæti norræna nálgunin hentað Íslandi?

Málstofa: Total Defence and Comprehensive Security – gæti norræna nálgunin hentað Íslandi?

Norræna húsið, Sæmundargata 11, 102 Reykjavík Kort

fim 17. sep 2026 09:30

Hvað getur Ísland lært af Finnlandi og Svíþjóð þegar kemur að allsherjarvörnum, viðbúnaði og viðnámsþrótti samfélagsins?

Hvernig ver samfélag sig þegar ógnir snúa ekki aðeins að hefðbundnum hernaði heldur einnig að mikilvægum innviðum, fjarskiptum, orku, upplýsingakerfum og aðfangakeðjum?

Háskólinn á Bifröst stendur fyrir málstofunni Total Defence and Comprehensive Security í Norræna húsinu 17. september. Þar leiða íslenskir, finnskir og sænskir sérfræðingar umræðu um reynslu Norðurlandanna af allsherjarvörnum og heildstæðu öryggi – og hvaða lærdóm Ísland getur dregið af þeirri reynslu.

Frummælendur:

🇪🇺 Dr Veronica Anghel, stjórnmálafræðingur við European University Institute, fjallar um allsherjarvarnir í víðara evrópsku öryggissamhengi.

🇫🇮 Axel Hagelstam, Director of International Affairs and Analysis hjá National Emergency Supply Agency (NESA), fjallar um finnska kerfið og hvernig stjórnvöld, atvinnulíf og samfélag vinna saman að viðbúnaði og öryggi.

🇸🇪 Jan Lundin, verðandi sendiherra Svíþjóðar á Íslandi, fjallar um allsherjarvarnir frá sjónarhóli sænskrar utanríkis- og öryggisstefnu.

🇮🇸 Jóhann B. Skúlason, aðstoðaryfirlögregluþjónn á almannavarnasviði ríkislögreglustjóra, færir íslenskt sjónarhorn inn í umræðuna um allsherjarvarnir og viðbúnað.

Málstofan er hluti af Jean Monnet Chair verkefninu Iceland’s Strategic Role in Arctic and European Security (ISARCEUR) við Háskólann á Bifröst, undir stjórn Magnúsar Skjöld prófessors, og er haldin í samstarfi við sendiráð Svíþjóðar og Finnlands á Íslandi.

Lestu meira um málstofuna á vef Háskólans á Bifröst https://www.bifrost.is/um-haskolann/frettir-og-tilkynningar/norraenar-allsherjarvarnir-og-island-til-umraedu-i-norraena-husinu

📍 Norræna húsið

📅 17. september 2026

🕤 9:30–12:00

🌐 Málstofan fer fram á ensku

🎟️ Ókeypis – öll velkomin

✍️ Skráning er nauðsynleg

Skráning:

Total Defence and Comprehensive Security

https://forms.cloud.microsoft/e/7u2YBb9HzR

Fylgstu með í beinu streymi:

https://vimeo.com/event/6148282