Living in Color / In Living Color
Norræna húsið, Sæmundargata 11, 102 Reykjavík Kort
sun 15. nóv 2026 15:30
Þetta sviðslistaverk sprettur af brýnni spurningu sem enn er ósvarað: Hvað þýðir það að vera „lituð“ (e. of color)?
Með því að flétta brot úr eldri verkum saman við nýjar tilraunir skapar hópurinn sameiginlegt rými þar sem draugar eru særðir fram og óvæntar víddir opnaðir. Verkið býður okkur að finna fyrir ónotunum sem fylgja kynþáttavæðingu en þokast jafnframt nær framtíð þar sem það að vera svört verður að ferli; að margræðu, sístækkandi flæði. Afnýlenduvædd og rannsakandi list sem leyfir okkur að dreyma og endurdreyma um hvað það merkir að vera svört.
Í rúman áratug hefur Sonya Lindfors unnið með hugmyndir um það að vera svört og um svarta líkama. Hún spyr áleitinna spurninga um vald og birtingarmyndir, bæði á sviðinu og utan þess, og ýtir sér ávallt lengra með ímyndunaraflinu. Living in Color / In Living Color er það fyrsta í röð verka sem bera yfirskriftina Black & Blue.