Lífsins flæði fyrir alla í Leikskálum í heilsuviku
Félagsheimilið Leikskálar, Víkurbraut 8, 870 Vík Kort
mið 4. nóv 2026 17:00
Bústaðu viðburðinn!Lífsins flæði fyrir alla.
Kæru íbúar í Vík og nágrenni. Við erum fjögur sem æfum og kennum jóga, leikfimi og hugleiðslu í Vík. Þann 4. nóvember kl. 17 langar okkur að bjóða þér að vera með okkur í tíma sem við köllum Lífsins Flæði fyrir alla. Þar byrjum við tímann á rólegri upphitun, síðan taka við alhliða styrkjandi æfingar, þá slökun og hugleiðsla. Kl. 18:00 endum við svo daginn með djúpslökun og gongspili. Þú getur valið um að taka þátt í báðum tímunum eða bara öðrum. Tíminn er ætlaður fyrir alla og við mælum með þægilegum klæðnaði. Hlý kveðja og hlökkum til að sjá þig, Annabella, Espen, Gunna og Marta.