Svakalega lestrarkeppnin er lestrarátak fyrir krakka í 1. - 7. bekk um land allt.
Í tilefni af þessu lestrarátaki ætlum við að blása til lestrarstundar hjá okkur á bókasafninu þar sem við erum búin að útbúa notalegt lestrarhorn fyrir börnin. Við ætlum að bjóða upp á djús og kex og hvetjum öll börn sem eru í 1.-7. bekk að koma og finna sér bók á safninu og ná sér í nokkrar lestrarmínútur.
Allir skólar geta tekið þátt og keppa um hver les mest á tímabilinu
15. september til 6. október 2026.
Markmið keppninnar er að auka lestraránægju barna.
Í keppninni skrá skólar niður hversu lengi nemendur lesa og senda inn tölur í lok keppninnar. Skólinn sem les í flestar mínútur sigrar keppnina og hreppir titilinn Svakalegasti lestrarskóli landsins ásamt því að fá glæsileg bókaverðlaun.
Allar frekari upplýsingar er hægt að sjá á sogusmidjan.is
Nánari upplýsingar veitir:
Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur
astrun.fridbjornsdottir@reykjavik.is
Lestrarstund með Svakalegu lestrarkeppninni
Borgarbókasafnið Spönginni, Spöngin 41, 112 Reykjavík Kort
mið 16. sep 2026 16:00