Leshringurinn Sólkringlan - Lungu

Leshringurinn Sólkringlan - Lungu

Borgarbókasafnið | Menningarhús Kringlunni, Listabraut 3, 103 Reykjavík Kort

fim 26. nóv 2026 17:30

Bústaðu viðburðinn!

Bók nóvembermánaðar er Lungu eftir Pedro Gunnlaug Garcia. Hún hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2023. Í umsögn dómnefndar segir: "Lungu er breið fjölskyldusaga margra kynslóða úr ólíkum heimshornum, sem færist smám saman inn á okkar tímaskeið hér á landi en teygir sig líka til framtíðar þegar kynslóðirnar safnast saman í sýndarveruleika sem kallast á við sjálfa alheimssöguna." Bókin gerist á Íslandi, Ítalíu og Kanada og sögusviðið nær yfir alla 20. öld og fram til framtíðar.

Leshringurinn Sólkringlan hittist venjulega þriðja fimmtudag í mánuði kl. 17.30-18.30 í Borgarbókasafninu Kringlunni, frá september til maí.

Dagskrá haustsins 2026 er eftirfarandi:

17. september: Jarðnæði eftir Oddnýju Eir Ævarsdóttur

15. október: Hægara pælt en kýlt eftir Magneu J. Matthíasdóttur

23. nóvember: Lungu eftir Pedro Gunnlaug Garcia

17. desember: Aðventa eftir Gunnar Gunnarsson

Umsjón og skráning:

Guttormur Þorsteinsson, sérfræðingur

guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is | 411 6204