Leshringur í Hannesarholti - Kvennakrimmaklúbburinn
Hannesarholt, Grundarstigur 10, 101 Reykjavík Kort
fös 4. des 2026 14:00
Bústaðu viðburðinn!Þriðji leshringurinn í Hannesarholti í höndum sjálfboðaliða.
Uppúr 1990 fóru nokkrar konur á Akureyri að hittast því þær uppgötvuðu að þær deildu sameiginlegu áhugamáli: Að hafa gaman af því að lesa kvennakrimma. Þetta voru þær Lone Jensen, Gyða Haraldsdóttir, Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Valgerður Magnúsdóttir. Þær skrifuðu grein í Veru 1994 sem olli usla í bókabúðum því konur streymdu að í leit að þessum spennandi bókum. Seinna bættist Ragnhildur Vigfúsdóttir í hópinn. Þær hittast enn reglulega og tala um bækur sem þær hafa lesið. Stundum lesa þær allar sömu bókina í einu, en það er undantekning. Enn hafa þær gaman af því að lesa kvennakrimma og ætla einmitt að fjalla um þá í opnum leshring í Hannesarholti.