Les métèques: Frönsk flökkulög
Hannesarholt, Grundarstigur 10, 101 Reykjavík Kort
fös 6. nóv 2026 20:00
Tónlist á sér engin landamæri, dægurlög ferðast milli landa, tungumála og menningarheima og öðlast sífellt nýtt líf. Sum þeirra verða jafnvel vinsælli í nýjum búningi en í sinni upprunalegu mynd. Les Métèques flytja sínar eigin útgáfur af þekktum frönskum perlum frá síðustu öld. Hér hljóma m.a. kunnugleg lög í nýju ljósi; lög sem margir þekkja betur í enskum útgáfum, eins og Les feuilles mortes (Autumn Leaves), Je t'appartiens (Let It Be Me) og Comme d'habitude (My Way). Les Métèques skipa: Ásta Ingibjartsdóttir (söngur), Eyjólfur Már Sigurðsson (söngur og gítar), Olivier Moschetta (söngur og bassi) og Ragnar Skúlason (fiðla). Kynnir og sögumaður er Gérard Lemarquis, sem leiðir áheyrendur í gegnum sögur laganna og listamannanna sem gerðu þau ódauðleg. Athugið, það er hægt að koma sér í franska-stemmningu fyrir tónleikana með því að panta sér franskan smakkdisk sem er borinn fram fyrir tónleikana kl.18 í matstofu Hannesarholts á 1. hæð. Franskur smakk-platti
Hægeldaðar nautakinnar í brúnni sósu með kartöflumús (Beint frá býli: Leirulækur/Mýrarnaut)
Bakað baguette með gráðaosti, peru og hunangi
Tarte flambée alsacienne: þunn, stökk flatbaka með crème fraîche, reyktu beikoni og lauk
Salade lyonnaise: frisée salat með beikoni og sítrónu-sinnepsdressingu
Mjúksoðið egg með tapenade úr ólífum, ansjósum og túnfiski