Leiðsögn safnstjóra | Karin Sander: 1957-2057

Leiðsögn safnstjóra | Karin Sander: 1957-2057

Listasafn Reykjavíkur | Hafnarhús, Tryggvagata 17, 101 Reykjavík Kort

fim 17. sep 2026 20:00

Markús Þór Andrésson safnstjóri Listasafns Reykjavíkur og annar sýningarstjóra Karin Sander: 1957-2057 verður með leiðsögn um sýninguna fimmtudagskvöldið 17. september kl. 20.00 í Hafnarhúsi.

Í leiðsögninni mun Markús veita innsýn í verk Karinar Sander og fjalla um hugmyndirnar á bak við sýninguna.

Á þessari yfirgripsmiklu sýningu eru verk sem spanna allan feril listakonunnar og gefa innsýn í verk alþjóðlegs hugmyndalistamanns sem vinnur með umhverfi okkar og tilvist á óvæntan og áhrifamikinn hátt.

Síðasti sýningardagur er 20. september.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa, frítt fyrir yngri en 18 ára.

Flytjendur