Kynningarfundur um fermingarfræðslu 2026–2027 verður í Hallgrímskirkju þann 16. september 2026 að lokinni messu sem hefst kl. 11:00 (fundurinn hefst um 12:15) í kórkjallara Hallgrímskirkju.
Foreldrum og fermingarungmennum er boðið á kynningarfund um fermingarfræðslu í Hallgrímskirkju sem ætluð er ungmennum í 8. bekk sem hafa ákveðið eða eru að velta fyrir sér að fermast vorið 2027.
Veturinn verður fjölbreyttur og skemmtilegur, með samtölum, fræðslu, messum, upplifun og ævintýraferð í Vatnaskóg.
Fyrirhugaður fermingardagur vorið 2026 er sunnudaginn 4. apríl kl. 11:00.
Kennsla hefst þriðjudaginn 6. október kl. 15:00 í Hallgrímskirkju.
Verið hjartanlega velkomin!
Skráning í fermingarfræðslu fer fram á heimasíðu Hallgrímskirkju www.hallgrimskirkja.is og á markaðstorgi Reykjavíkurprófastsdæmis vestra á www.abler.io
HALLGRíMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR
Kynningarfundur um fermingarfræðslu 2026–2027 í Hallgrímskirkju
Hallgrímskirkja, Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavík Kort
mið 16. sep 2026 12:15