Kvöldkirkja í Hallgrímskirkju
Hallgrímskirkja, Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavík Kort
fim 24. sep 2026 20:00
Kvöldkirkja í Hallgrímskirkju
Fyrsta kvöldkirkja haustsins verður í Hallgrímskirkju 24. september á mill kl. 20:00-22:00.
Tilgangur kvöldkirkjunnar er að opna kirkjudyrnar fyrir öllum sem vilja dýpka enn frekar trúarlega upplifun sína eða finna sig ekki í hefðbundnu helgihaldi.
Tónlist, þögn, íhugun og kyrrð eru einkenni kvöldkirkjunnar.
Kvöldkirkjan er samstarfsverkefni Dómkirkjunnar og Hallgrímskirkju. Prestar og starfsfólk þessara miðborgarkirkna starfa saman og öflugt tónlistarfólk sér um tónlistarflutning.
Kvöldkirkjan er öllum opin og hentar mörgum. Velkomin.
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN KYRRÐARSTAÐUR