Kvartett Sigurðar Flosasonar á Múlanum

Kvartett Sigurðar Flosasonar á Múlanum

Harpa, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort

mið 18. nóv 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með haustdadagskrá sína með spennandi tónleikum miðvikudaginn 18. nóvember kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu. Á tónleikunum mun kvartett saxófónleikarans þaulreynda Sigurðar Flosasonar flytja glænýja og nýlega tónlist eftir Sigurð. Tónlistin er nútímalegur jazz sem byggir á grunni bebop stílsins en teygir sig í ýmsar áttir. Grípandi laglínur svífa yfir flóknara umhverfi hljóma og hryns. Auk Sigurðar skipa hljómsveitina þau Anna Gréta Sigurðardóttir á píanó, Birgir Steinn Theódórsson á kontrabassa og Einar Scheving á trommur.

Spennandi haustdagskrá Múlans heldur síðan áfram á miðvikudagskvöldum fram í miðjan desember. Múlinn er að á sínu 29. starfsári en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans. Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu. Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna. Tónleikar Múlans fara fram á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 5200 og 3800 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu