Krílastundir eru notalegar og óformlegar samverustundir í barnadeildinni. Þær eru góður vettvangur fyrir foreldra til að koma saman, spjalla, skiptast á ráðum og eiga ljúfa gæðastund með krílunum sínum í notalegu umhverfi bókasafnsins.
Klukkan 11 býður starfsmaður upp á söngstund þar sem við syngjum saman helstu leikskólaslagarana.
Krílastundir í Árbæ
Borgarbókasafnið | Menningarhús Árbæ, Hraunbær 119, 110 Reykjavík Kort
fim 24. sep 2026 10:30
Bókasafnið á mikið af forvitnilegum og fræðandi bókum um uppeldi og umönnun ungbarna. Hægt er að glugga í efnið á staðnum og korthafar geta fengið það lánað heim. Svo er auðvitað mikið úrval af barnabókum til að kveikja áhuga krílanna á bókmenntum!
Það er góð skiptiaðstaða á salerni safnsins. Kaffi og te í boði og aðgangur ókeypis.
Sjáumst á safninu!
Nánari upplýsingar veitir:
Oddur Ingi Þórsson Hulduson, sérfræðingur
oddur.ingi.thorsson@reykjavik.is
Það er góð skiptiaðstaða á salerni safnsins. Kaffi og te í boði og aðgangur ókeypis.
Sjáumst á safninu!
Nánari upplýsingar veitir:
Oddur Ingi Þórsson Hulduson, sérfræðingur
oddur.ingi.thorsson@reykjavik.is