Koncert: Bergmál fjallanna í Jónshúsi - Sigurdís Tryggvadóttir

Koncert: Bergmál fjallanna í Jónshúsi - Sigurdís Tryggvadóttir

Jónshús, Kaupmannahöfn, Øster Voldgade 12, 1350 København Kort

fös 13. nóv 2026 20:00

🇮🇸 ÍSLENSKA

Föstudaginn 13. nóvember kl. 20 kynnir djasspíanóleikarinn, tónskáldið og söngkonan, Sigurdís Tryggvadóttir, sína fyrstu plötu, Bergmál fjallanna, á tónleikum í Jónshúsi í Kaupmannahöfn.

Platan á rætur sínar í norðlenskri sveit þar sem Sigurdís ólst upp. Í eigin tónsmíðum sækir hún innblástur í íslenska náttúru, árstíðaskiptin, birtuna og myrkrið. Hún vinnur einnig með fjölskylduarfinn, ljóð og lög Jónasar Tryggvasonar (1916–1983), afabróður síns.

Jónas lést áratug áður en hún fæddist en þau tengjast í gegnum sameiginlega heimahaga, fjölskyldubönd og ástríðu fyrir listsköpun. Jónas byrjaði ungur að missa sjónina og hefur Sigurdís samið tónlist við persónuleg og myndræn ljóð hans.

Með Sigurdís leika kontrabassaleikarinn Mariusz Praśniewski og trommuleikarinn Péter Horváth. Þau eru öll búsett í Kaupmannahöfn.

Miðar verða seldir við innganginn og kosta 90 DKK. Tónleikarnir vara í klukkustund.

Flytjendur