Komdu að læra þjóðdansa!

Komdu að læra þjóðdansa!

Molinn Ungmennahús, Hábraut 2, 200 Kópavogur Kort

lau 19. sep 2026 11:00

Komdu að læra þjóðdansa!

Á þessu námskeiði kynnast þátttakendur íslenskum þjóðdönsum og læra um þá dansa sem Reykvíkingar dönsuðu 1864.

Hringdansar, rælar, valsar og bömerdans eru á meðal þess sem er á dagskrá.

Atli Freyr Hjaltason og Elizabeth Katrín Mason stýra námskeiðinu en þau eru hokin af reynslu og hafa ferðast um Norðurlöndin og víðar þar sem þau hafa kennt og sýnt þjóðdansa.

VAKA þjóðlistahátíð fer fram dagana 13.– 19. september 2026 í Kópavogi. Á hátíðinni mætast tónlist, dans, handverk, sagnalist og kveðskapur í fjölbreyttri dagskrá fyrir forvitna gesti á öllum aldri. VAKA leggur áherslu á að gera sem flestum kleift að sækja viðburði hátíðarinnar. Því eru í boði þrír mismunandi verðflokkar á flesta viðburði og velur hver gestur það verð sem hentar best. Tryggið ykkur hátíðarpassa sem veitir ykkur aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar.

Allar upplýsingar um hátíðina má finna á www.vakareykjavik.is og á samfélagsmiðlum Vökufélagsins.

Nánar um hátíðarviku: https://www.facebook.com/events/2881917765475464