Komdu á Sögukvöld!

Komdu á Sögukvöld!

Gunnarshús, Dyngjuvegur 8, 104 Reykjavík Kort

fim 5. nóv 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Hvað geta hljóðlist, líf íslenskrar myndlistarkonu á 19. öld og embættismennska á Íslandi á 17. öld sagt okkur um fortíðina?

Á næsta Sögukvöldi kynnum við nýtt hefti Sögu, tímarits Sögufélags, þar sem fjölbreyttar rannsóknir og ný sjónarhorn á sögu og menningu koma við sögu.

Ragnheiður Kristjánsdóttir stýrir kvöldinu og kynnir heftið, en þrír höfundar segja frá greinum sínum:

• Davíð Ólafsson fjallar um „Hljómsveitina sem kann ekki að spila“ og hljóðlist Hermanns Nitsch, Dieters Roth og nemenda nýlistadeildar MHÍ.

• Hanna Guðlaug Guðmundsdóttir kynnir greinina Heimasæta verður að heimskonu, um Þóru Pétursdóttur Thoroddsen (1847–1917), myndlistarkonu sem var á mörkum hefða og nýrrar samtíðar.

• Gunnar Marel Hinriksson fjallar um Henrik Bjelke, amtmann yfir Íslandi á árunum 1662–1683.

Sögukvöld er tækifæri til að kynnast nýjum rannsóknum, heyra sögurnar á bak við greinarnar og ræða við höfunda um efnið.

Öll velkomin!