Klappleikir með Sigga & Ingibjörgu
Þorpið frístundamiðstöð, Þjóðbraut 13, 300 Akranes Kort
sun 1. nóv 2026 13:00
Bústaðu viðburðinn!📅 1. nóvember kl. 13:00
📍 Þorpið - félagsmiðstöð
👶 Aldur: 4-10 ára og fullorðnir (yngri og eldri systkini velkomin með!)
🗣️ Tungumál: Smiðjan fer að mestu fram á íslensku en aðgengileg fjölskyldum með önnur móðurmál.
🎟 Ókeypis aðgangur
Klappleikir með Sigga&Ingibjörgu er fjörug fjölskyldusmiðja þar sem áhersla er lögð á leik, samveru og tónlist með einföldum og skemmtilegum klappleikjum og söngvum. Einu hljóðfærin sem við þurfum að taka með okkur erum við sjálf.
🎶 Klappsmiðjan er tilvalin leið fyrir börn að njóta tónlistar, hreyfingar og samveru.
🧸 Fjölskylduvænt og frítt – öll hjartanlega velkomin!
Sigurður Ingi Einarsson og Ingibjörg Fríða Helgadóttir eru reyndir smiðjuleiðbeinendur og tónlistarfólk. Hann er slagverksleikari og hún er söngkona og saman munu þau leiða þátttakendur í klappi, stappi og söng. Klappleikjasmiðjan hefur verið haldin víða um land undanfarin ár við góðar undirtektir.
Öll börn og fullorðnir fara syngjandi heim með nýja leiki sem vekja gleði og kátínu!