Katrín Halldóra á Hótel Búðum 27. & 28. Nóv.

Katrín Halldóra á Hótel Búðum 27. & 28. Nóv.

Hótel Búðir, Búðir, Staðarsveit, 356 Snæfellsbær Kort

fös 27. nóv 2026 16:00

Bústaðu viðburðinn!

Katrín Halldóra á Hótel Búðum

Tónlistarveisla með kvöldverði & gistingu. Fyrsti í aðventu.

Tónlistarveislan á Hótel Búðum snýr aftur í þriðja sinn og hefur fest sig í sessi sem einn vinsælasti vetrarviðburður landsins. Sex helgar í röð fyllist hótelið af lifandi tónlist, einstökum mat og hlýlegri stemningu í hjarta Snæfellsness.

Helgina 27. og 28. nóvember mun hin yndislega og hæfileikaríka söng- og leikkona, Katrín Halldóra, mæta á Hótel Búðir og heilla gesti með sínum dásamlega söng. Katrín mun flytja hinar ýmsu dæguperlur þar sem rómantíkin mun svífa yfir vötnum. Í ljósi þess að þetta er fyrsta helgin í aðventu verður lagavalið einnig í jólalegum búningi sem mun verða falleg og dásamleg blanda við söguríkt og jólaskreytt umhverfi hótelsins. Viðburðurinn verður því uppfullur af frábærri tónlist, jólalegri stemningu, góðum mat og notalegri dvöl á hótelinu.

Innifalið fyrir tvo:

• Fordrykkur við komu

• Þriggja rétta kvöldverður

• Lifandi tónleikar með Katrín Halldóra í lounge rými hótelsins

• Gisting í eina nótt

• Ljúffengur morgunverður daginn eftir

Tryggðu þér sæti í tíma. Undanfarin tvö ár hafa nær allar tónlistarhelgar selst upp og eftirspurnin verið gríðarleg.

Við hlökkum til að taka á móti þér og þínum!

Fyrir fyrirtækja- og hópabókanir er hægt að hafa samband á budir@budir.is