Jólatónleikar Kórs Njarðvikurkirkju
Hljómahöll, Hjallavegur 2, 260 Njarðvík Kort
mið 9. des 2026 20:00
Bústaðu viðburðinn!Jólatónleikar hafa verið einn af hápunktum ársins hjá kór Njarðvíkurkirkju. Kórinn hefur stækkað og því finnst okkur vel við hæfi að stækka bæði prógrammið og umgjörðina!
Í ár ætlum við að bjóða upp á sannkallaða jólatónlistarveislu, eins og okkur einum er lagið, í Hljómahöll. Við ætlum að bjóða upp á fallega jólatónlist, kraftmiklar útsetningar, fjörbreytt efni og með okkur verður einvalalið hljóðfæraleikara.
Í ár er líka sérstök ástæða fyrir því að við leggjum okkur öll fram.
Allur ágóði tónleikanna rennur til kaupa á nýju brjóstaskimunartæki fyrir Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS). Þetta er málefni sem stendur okkur afar nærri og okkur þykir vænt um að geta lagt okkar af mörkum.
Við vonum því að þið komið, njótið kvöldsins með okkur og hjálpið okkur um leið að safna fyrir þessu mikilvæga tæki.
📅 Miðvikudaginn 9. desember 2026
📍 Stapi í Hljómahöll
🎟️ Miðaverð: 5.500 kr. (3500 fyrir aldraða, öryrkja og börn)
🎫 Miðasala hefst 2. nóvember á Tix.is
Við hlökkum til að sjá ykkur! ❤️