Jólanótt Scrooge
Salurinn, Hamraborg 6, 200 Kópavogur Kort
fös 11. des 2026 20:00
Töfrandi jólaævintýri fyrir alla fjölskylduna
Hvað þarf til að bræða hjarta manns sem hefur gleymt því hvernig á að elska?
Í Lundúnum fyrir rúmri öld býr Ebenezer Scrooge, ríkur en afskaplega nískur maður sem hefur litla þolinmæði fyrir jólunum og enn minni fyrir fólkinu í kringum sig.
En á aðfangadagskvöld tekur líf hans óvænta stefnu.
Þegar klukkan slær tólf hefst undarleg og ævintýraleg ferð þar sem fortíð, nútíð og framtíð leiða Scrooge á vit minninga, gleði og þess sem raunverulega skiptir máli.
Jólanótt Scrooge er ný, íslensk leikgerð Níels Thibaud Girerd á hinni sígildu jólasögu Charles Dickens, A Christmas Carol.
Hér lifnar sagan við með leik, söng, tónlist, húmor og töfrum í hlýlegri leiksýningu fyrir alla fjölskylduna.
Saga um einmanaleika og vináttu, missi og von — og þá dásamlegu staðreynd að það er aldrei of seint að breytast.
Flytjendur sýningarinnar eru Vilhjálmur B. Bragason, Bryndís Guðjónsdóttir og Oddur Arnþór Jónsson.
Sýningin er um 50 mínútur að lengd.
Frumsýnt 5. desember 2026 í Salnum í Kópavogi.