JÓLAKVÖLD HÚSGAGNAHALLARINNAR!
Húsgagnahöllin (Reykjavík), Bíldshöfði 20, 110 Reykjavík Kort
fim 5. nóv 2026 19:00
Bústaðu viðburðinn!🎄LOKSINS ER KOMIÐ AÐ ÞVÍ – JÓLAKVÖLD HÚSGAGNAHALLARINNAR!
Fimmtudaginn 5. nóvember verður kátt í Höllinni! Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á notalegt jólakvöld þar sem fallegar jólavörur, ljúfir tónar og hátíðleg stemning verða í aðalhlutverki. ❤️
✨ Soffía frá Skreytum hús verður á staðnum og sýnir okkur skemmtilegar hugmyndir af jólaskreytingum.
✨ Slippfélagið verður einnig á staðnum með skemmtilegar hugmyndir, nýjustu litatrendin og faglega litaráðgjöf.
🧀 MS býður upp á gómsætar jólaveitingar ásamt sælkeravörum frá Lie Gourmet.
🎄 Möndlubásinn verður að sjálfsögðu á sínum stað með ljúffengar jólamöndlur.
🎶 Þríeykið í Fjörkunum leikur ljúfa jólatóna og fyllir Höllina af sannkallaðri jólastemningu.
Jólastemningin hefst kl. 19:00!
Komdu og njóttu með okkur ljúfrar jólastemningar og fáðu innblástur fyrir hátíðirnar.✨
Hlökkum til að sjá ykkur!❤️🎄