Jólahandverksmarkaður í Spönginni

Jólahandverksmarkaður í Spönginni

Borgarbókasafnið Spönginni, Spöngin 41, 112 Reykjavík Kort

lau 21. nóv 2026 11:00

Bústaðu viðburðinn!

Handverksfólk í Grafarvogi býður gestum og gangandi á handverksmarkað á Borgarbókasafninu í Spönginni.
Á markaðnum verður ýmislegt fallegt í boði. Má þar nefna prjónað og heklað handverk, prjónavörur, tréverk, myndlist, keramik, handunnin kort og skartgripi, jólagjafapoka úr endurnýttum textíl og púsl-jóladagatöl.
Á staðnum verður einnig ljósmyndari sem býður upp á stuttar myndatökur.
Öll velkomin!
Nánari upplýsingar:
Silja Rut Sigurfinnsdóttir, skipuleggjandi markaðarins
siljaruts@gmail.com
Katrín Guðmundsdóttir, Borgarbókasafni Spönginni
katrin.gudmunsdottir@reykjavik.is