Jólagleði með Bergmál

Jólagleði með Bergmál

fim 3. des 2026 20:30

Það er gott að fá hláturharðsperrur til að slá á jólastressið.

Fimmtudagskvöldið 3. desember mæta þær Elísa og Selma í Hljómsveitinni Bergmál á Grund með skemmtilegt tónleika og skemmtun með það markmið að lengja lífið um margar mínútúr, létta lundina og fá þig til að hlæja.

Þetta verða tónleikar þar sem húmorinn fer undir beltisstað og tónlistin og gleðin verða í hæsta gæðaflokki.

Tónleikarnir hefjast 20:30 en húsið opnar 18:00 svo það er um að gera að gæða sér á góðum kvöldverði fyrir tónleikana.

🚨 Takmarkaður miðafjöldi í boði 🚨

Tryggðu þér sæti NÚNA og mættu á kósý dónajól.

Þú þarft að panta miðann þinn hjá okkur. Messenger, símtal eða koma á Grund og skrá nafnið þitt. Miðaverð 3.500kr