Jólabókaspjall barnanna

Jólabókaspjall barnanna

Bókasafn Garðabæjar, Garðatorg 7, 210 Garðabær Kort

lau 14. nóv 2026 13:00

Bústaðu viðburðinn!

Í ár verður sannkölluð jólastemning á bókasafninu þar sem lesið verður upp úr bráðskemmtilegum bókum þar sem jólin eru í aðalhlutverki. Embla Bachmann les upp úr bók sinni Farðu um jólin og Kristín Björg Sigurvinsdóttir les upp úr bókinni Hvað fá jólasveinar eiginlega í jólagjöf? Einnig mætir Stúfur á svæðið og heldur sögustund eins og honum einum er lagið. Hvað gæti verið jólalegra?

Dagskrá

Kl. 13:00 – Embla Bachmann 📖 Farðu um jólin

Bókin fjallar um erkióvinina Ísabellu og Lúkas sem lenda í þeirri óvæntu uppákomu að mamma hennar og pabbi hans byrja að deita rétt fyrir jól. Þau hafa aðeins örfáa daga til að koma í veg fyrir sambandið svo þau þurfi ekki að verja jólunum saman. En mun þeim takast það? Bókin er sett upp eins og jóladagatal með 24 köflum sem spanna tímabilið frá 1. til 24. desember.

Kl. 13:20 – Kristín Björg Sigurvinsdóttir 📖 Hvað fá jólasveinar eiginlega í jólagjöf?

Bókin segir frá ævintýri Agnesar og jólaálfsins Jólentínusar sem leggur af stað í leit að íslensku jólasveinunum til að færa þeim jólagjafir. En það er einn hængur á, hann finnur þá hvergi! Agnes ákveður að hjálpa honum og saman leggja þau af stað í æsispennandi ferðalag um Ísland þar sem þau hitta ýmsar vættir, sumar háskalegri en aðrar. En stærsta spurningin er auðvitað: Hvað fá jólasveinar eiginlega í jólagjöf?

Kl. 13:40 – Stúfur 🎅 Stúfur mætir á svæðið og heldur sögustund eins og honum einum er lagið. Á dagskránni eru klassískar íslenskar jólasögur og létt jólasprell frá þessum minnsta bróður jólasveinanna.

🍊🍪 Boðið verður uppá mandarínur og piparkökur fyrir börnin.

Frítt inn og öll hjartanlega velkomin! ✨🎄📚