Íslensk sundlaugamenning - pottaspjall í Sundlaug Kópavogs

Íslensk sundlaugamenning - pottaspjall í Sundlaug Kópavogs

Sundlaug Kópavogs, Borgarholtsbraut 17, 200 Kópavogur Kort

fim 17. sep 2026 17:00

Af hverju förum við í sund þegar við ætlum ekki að synda? Hvers vegna spjöllum við við ókunnuga í heita pottinum en ekki í strætó? Verður maður kyndilberi menningararfs ef maður mætir í sama pottinn klukkan hálfátta flesta morgna? Og má maður þá hætta að mæta í þennan pott eftir að íslensk sundmenning komst á skrá UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf mannkyns? Væri það ábyrgðarleysi gagnvart mannkyninu?

Valdimar Tr. Hafstein þjóðfræðingur býður til fljótandi málstofu um sundlaugamenningu í heita pottinum. Enginn fyrirlestur verður haldinn: gestir bera fram spurningar og vangaveltur og saman verður leitað svara — á floti og við þægilegt hitastig.

VAKA þjóðlistahátíð fer fram dagana 13.– 19. september 2026 í Kópavogi. Á hátíðinni mætast tónlist, dans, handverk, sagnalist og kveðskapur í fjölbreyttri dagskrá fyrir forvitna gesti á öllum aldri. VAKA leggur áherslu á að gera sem flestum kleift að sækja viðburði hátíðarinnar. Því eru í boði þrír mismunandi verðflokkar á flesta viðburði og velur hver gestur það verð sem hentar best. Tryggið ykkur hátíðarpassa sem veitir ykkur aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar.

Allar upplýsingar um hátíðina má finna á www.vakareykjavik.is og á samfélagsmiðlum Vökufélagsins.

Nánar um hátíðarviku:

https://www.facebook.com/events/2881917765475464