Innleiðing NIS2 og CRA á tímum takmarkalausrar gervigreindar
Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
mið 11. nóv 2026 12:00
Á sama tíma og gervigreind er að verða takmarkalaus er unnið af kappi að þróa og innleiða reglugerðir til að samræma öryggi og seiglu innan Evrópu. Ísland sem hluti af EES fylgir viðeigandi reglugerðum og fyrirtæki sem framleiða vörur og þjónustu fyrir evrópskan markað þurfa að uppfylla allar tilskipanir og reglugerðir sem þar gilda – hvort sem þær verið innleiddar á Íslandi eða ekki.
Á ráðstefnunni verður fjallað um þessi mál frá ýmsum sjónarhornum til að fá mynd á stöðu Íslands og íslenskra fyrirtækja í þessu ljósi.
Hver er staða og stefna Íslands varðandi gervigreind? Hvaða áhrif hefur NIS2 og tilheyrandi lög og reglur í íslenskt samfélag? Hverjir þurfa að huga að NIS2 og hvenær? Hvaða áhrif hefur CRA á íslensk fyrirtæki sem starfa á evrópskum markaði? Hvaða staðlar nýtast í slíkum pælingum? Á takmarkalaus gervigreind og krefjandi reglugerðir vænlega samleið?
Ráðstefnan er upplögð fyrir þau sem þurfa að huga að NIS2 eða CRA og íhuga að nota gervigreind í því samhengi.
Nánari upplýsingar um dagskrá, verð og skráningarform er að finna á www.sky.is