IN CAELO ET IN TERRA – Útgáfutónleikar á tvöfaldri afmælishátíð
Hallgrímskirkja, Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavík Kort
sun 25. okt 2026 17:00
Kór Hallgrímskirkju býður til tónleika í tilefni af útkomu fyrstu breiðskífu kórsins með nýrri íslenskri kirkjutónlist, In caelo et in terra. Diskurinn er gefinn út af Hallgrímskirkju á 40 ára vígsluafmæli kirkjunnar og 5 ára afmæli Kórs Hallgrímskirkju.
Kór Hallgrímskirkju hefur frá upphafi lagt mikla áherslu á nýsköpun og voru öll verkin á plötunni pöntuð og frumflutt af kórnum. Þau eru samin við kirkjulega texta á latínu, texta sem eiga sér langa sögu og hafa verið túlkaðir á ótal vegu í tónum. Hér fá tónskáld samtímans tækifæri til að nálgast þessa texta frá nýju sjónarhorni og skapa eigin hljóðheim í kringum orð sem hafa fylgt kirkjunni um aldir.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Diskurinn verður til sölu í forkirkjunni fyrir og eftir tónleikana og jafnframt verður tekið á móti frjálsum framlögum í kórsjóð.
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR