Hversdagsleg teikning með Helgu Páley

Hversdagsleg teikning með Helgu Páley

Gerðarsafn Kópavogur Art Museum, Hamraborg 4-6, 200 Kópavogur Kort

mið 11. nóv 2026 12:15

Bústaðu viðburðinn!

Verið velkomin á teiknismiðju með myndlistarkonunni Helgu Páleyju Friðþjófsdóttur, miðvikudaginn 11. nóvember klukkan 12:15 – 13:00.

Aðgangur ókeypis!

Í þessari hádegis smiðju sækjum við innblástur í verk Valgerðar Briem og skoðum hvernig hversdagsleg augnablik, hlutir og smáatriði geta orðið að efniviði í myndlist. Þátttakendur vinna með eigin upplifanir og skapa teikningar þar sem hið hversdagslega fær nýtt samhengi í gegnum frjálsa teikningu og leik.

Helga Páley (f. 1987) býr og starfar í Reykjavík. Hún vinnur helst málverk með blandaðri tækni ásamt teikningum á pappír. Myndirnar byggjast upp í lögum og taka oft miklum breytingum í ferlinu, þar sem innsæi og tilraunir fá að leiða verkið áfram.