Húllahreysti Vinnustofa

Húllahreysti Vinnustofa

Dansverkstæðið, Hjarðarhagi 47, 101 Reykjavík Kort

fim 3. des 2026 17:00

Húllahreysti eru mánaðarlegar vinnustofur fyrir fólk sem vill komast í betra jafnvægi og læra eitthvað skemmtilegt og krefjandi.

Tímarnir skiptast í "on body" og "off body" húlla. Við lærum flæði jafn sem alls kyns trikk.

Húlla er stórkostlegt fyrir fínhreyfingar, rýmisgreind, sterkari miðju og listræna tjáningu.

Ekki þarf að hafa reynslu af dansi né húlla til að taka þátt.

Tímarnir eru fyrir byrjendur OG lengra komna.

Húllahringir verða á staðnum en ef þú átt húllahring er gott að taka með sér.

Fatnaður má ekki vera of laus þar sem það er pirrandi að flækjast í.

Vatnsflaska og góða skapið.

Fyrsta fimmtudag hvers mánaðar kl.17-19.

Verð: 5000kr.

Húllastelpan eða Róberta Michelle Hall er húlladansari og skemmtikraftur. Hún hefur kennt húlla í þónokkur ár og sjálf húllað síðan 2018.

Skráning:

https://forms.gle/usWGsBKZFGhH8nuS8