Hringrás

Hringrás

Borgarbókasafnið Spönginni, Spöngin 41, 112 Reykjavík Kort

lau 7. nóv 2026 11:00

Bústaðu viðburðinn!

Myndlistarfélagið Litka sýnir verk sín í Borgarbókasafninu Spönginni.

Sýningaropnun föstudaginn 6. nóvember kl. 16.00

Nafnið á sýningunni, Hringrás, er hægt að túlka á margan hátt í málverkinu. Litapallettan er jú hringrás, hringlaga flæði í mynstri og eða litum. Hin daglega rútína eða fæðing til dauða, endurtekning eða endurnýting. Allt þetta er hægt að sjá í málverkum þátttakenda á þessari samsýningu, þar sem hverjum og einum eru gefnar frjálsar hendur til að túlka nafnið á sýningunni.

Um 40 félagsmenn Myndlistarfélagsins Litku taka þátt í þessari sýningu í Spönginni.

Litka var stofnað 2009 og er öllum frjálst að ganga í félagið. Það sem félagsmenn eiga sameiginlegt er að mála á eigin forsendum, njóta þess og hittast og einnig að sýna saman afraksturinn.

Sýningin stendur til og með 28. nóvember.

Nánari upplýsingar:

Katrín Guðmundsdóttir, Borgarbókasafninu Spönginni

katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is

Hafdís Harðardóttir, Myndlistarfélaginu Litka

fruhafdis@gmail.com

Flytjendur