Hreiðrið: sögur um að tilheyra

Hreiðrið: sögur um að tilheyra

Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort

fös 18. sep 2026 11:00

Hreiðrið er notalegt horn á Borgarbókasafni Reykjavíkur sem geymir safn texta og miðla sem valdir eru af notendum bókasafnsins. Í tilefni Hinsegin daga munu gestir Hreiðursins geta hlustað á 9 sögur þar sem hinsegin fólk deilir bókum, lögum, ljóðum, kvikmyndum og leikhúsverkum sem vekja hjá þeim tilfinningu um að tilheyra. Í heimi þar sem fólk er sífellt meira sundrað gefur Hreiðrið tækifæri til að hlusta á einstaklinga með mismunandi lífsreynslu.

Innsetningin verður opin út september í Grófinni (2. hæð). Sögurnar verða áfram aðgengilegar á vefsíðu Borgarbókasafnsins eftir þann tíma. Þér er boðið á foropnun sýningarinnar þann 6. ágúst, milli klukkan 16:00 og 18:00.

https://borgarbokasafn.is/hreidrid-sogur-um-ad-tilheyra

Nánar: Fanny Sissoko - fanny.sanne.sissoko@reykjavik.is