Hrafnablót: Guðlaugar saga - Útgáfutónleikar í Tónabíói
RVK Bruggfélag Tónabíó, Skipholt 33, 105 Reykjavík Kort
fim 26. nóv 2026 20:00
Hrafnablót fagnar útgáfu fyrstu breiðskífu sinnar, Guðlaugar sögu, í Tónabíói þann 26. nóvember. Platan verður flutt í heild sinni, auk nokkurra nýrra laga. Drungi og Fortíð verða sérstakir gestir!
Hrafnablót spilar göldrum þrunginn þjóðlagamálm þar sem þung riff og þjóðleg áhrif mætast. Sveitin var stofnuð árið 2024 og sækir innblástur í íslenska galdrasögu, þjóðsögur og Íslendingasögur.
Guðlaugar saga er 48 mínútna heildarverk sem segir sögu Guðlaugar, ungrar konu sem fer á djammið í Reykjavík. Þar dregur dularfull dís hana inn í fornt helgihald og þegar hún vaknar á ný er hún stödd á vígvelli á landnámsöld með ekkert meðferðis nema staka rafbyssu. Guðlaug lendir í höndum stríðandi fylkinga og er flutt vestur á firði. Þar kemst hún fljótt að því að sjarmi hennar og óvænt staða í þessum framandi heimi veita henni meiri áhrif en hún hefði getað ímyndað sér.
Þessa sögu flytjum við frá upphafi til enda í Tónabíói. Við hlökkum til að deila henni með ykkur og fagna útgáfunni með Drunga og Fortíð!
Platan kemur út 11. september á helstu streymisveitum, geisladiski og vínyl. Hún var hljóðblönduð af Helga Durhuus hjá Stúdíó Helvíti og hljómjöfnuð af Lasse Lammert, sem hefur meðal annars unnið með Alestorm, Gloryhammer og Wind Rose.
Dyrnar opna klukkan 19:00
20:00 Drungi
21:00 Fortíð
22:00 Hrafnablót
Miðinn kostar 3.990 kr. og miðasala fer fram hér:
https://tix.is/event/22293