How do we know what we know? Mapping Iceland's Music Sector - Dialogue on Creative Industries
þri 3. nóv 2026 08:30
Bústaðu viðburðinn!Samþal um skapandi greinar
Að vita sínu viti - Rannsóknir og hagnýting þekkingar á vistkerfi tónlistar á Íslandi
Þriðjudagur 3. nóvember kl. 8:30-10:00 í streymi og á staðnum hjá
📍 Fenris Creations, 3. hæð í Grósku, Kristínargötu 1, Reykjavík.
Hvaða aðferðum beitum við í rannsóknum á vistkerfi tónlistar á Íslandi og hvernig hagnýtum við þá þekkingu? Hvað segja ólíkar rannsóknir okkur um stöðu tónlistargeirans og hvernig nýtist sú þekking við stefnumótun, fjármögnun og ákvarðanatöku?
Rannsóknasetur skapandi greina (RSSG), Tónlistarmiðstöð og Tónlistarborgin Reykjavík, í samstarfi við Fenris Creations, bjóða til opins samtals um rannsóknir, þekkingarsköpun og hlutverk þekkingar í að móta framtíð íslensks tónlistarlífs. Viðburðurinn er hluti af Bransaveislu Tónlistarmiðstöðvar og Tónlistarborgarinnar, árlegri viðburðaröð sem haldin er dagana fyrir Iceland Airwaves hátíðina.
Rannsakendur hafa farið ólíkar leiðir við að greina stöðu íslenskrar tónlistar í samfélaginu, á streymisveitum, í stefnum og starfsáætlunum. Við ætlum að heyra frá rannsakendum og fagfólki um hvernig þekking á tónlistargeiranum verður til, hvaða aðferðum þau beita og hvernig hægt er að hagnýta niðurstöðurnar. Að kynningunum loknum tekur við pallborðsumræða um hvernig rannsóknir og gögn af þessu tagi geta nýst þeim sem móta stefnu, úthluta fjármagni og taka ákvarðanir sem varða tónlistargeirann.
Rannsóknir og aðferðir kynna:
Erla Rún Guðmundsdóttir kynnir tölfræðigreiningar Rannsóknaseturs skapandi greina um íslenskan tónlistariðnað og ræðir takmörk og tækifæri sem tölfræðin skapar í ljósi greininga á uppgötvun og hlustun á íslenska tónlist.
R. Michael Hendrix hefur beitt aðferðafræði hönnunarhugsunar í rannsóknum sínum, meðal annars á lifandi tónlist, tónleikastöðum og menningarlegum innviðum í miðborg Reykjavíkur fyrir Tónlistarborgina. Hann fer í hvað einkenni slíka vegferð og hvernig er best að miðla þekkingunni sem skapast.
Þorbjörg Daphne Hall hefur byggt rannsóknir sínar á íslensku tónlistarlífi á eigindlegum aðferðum og vann meðal annars með rýnihópa í rannsókn Rannsóknaseturs skapandi greina fyrir Tónlistarmiðstöð um stöðu íslenskrar tónlistar. Hún kynnir helstu niðurstöður greiningar með rýnihópum og fjallar um hvernig slík þekking dýpkar skilning okkar á viðfangsefninu.
Þátttakendur í pallborðinu eru:
Arna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustjóri menningar og skapandi greina í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.
María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar
Þorvaldur Davíð Kristjánsson er 1. varaborgarfulltrúi fyrir Viðreisn í Reykjavík. Hann er varaformaður skóla- og frístundaráðs, varaformaður menningarráðs og fulltrúi í velferðarráði. Nýverið tók hann við formennsku Markaðsstofu Höfuðborgarsvæðisins.
Viðburðurinn fer fram á ensku
Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar í Grósku.
Skráning HÉR: www.rssg.is/samtal-skraning
Samtal um skapandi greinar er viðburðaröð á vegum Rannsóknaseturs skapandi greina í samstarfi við Fenris Creations. Markmið samtalanna er að skapa vettvang fyrir umræðu, þekkingarmiðlun og ólík sjónarhorn á málefni sem snerta menningu og skapandi greinar.
Um þátttakendur
Arna Kristín Einarsdóttir er skrifstofustjóri menningar og skapandi greina í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. Hún hefur víðtæka reynslu á sviði tónlistar, listrænnar stjórnunar og menningarstefnumótunar, bæði hér á landi og erlendis. Arna Kristín hefur gegnt stjórnunarstöðum hjá sinfóníuhljómsveitum í þremur löndum, meðal annars sem framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands og National Arts Centre Orchestra í Ottawa í Kanada og dagskrár- og skipulagsstjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar í Gautaborg í Svíþjóð. Arna Kristín er með meistaragráðu í menningar- og menntastjórnun frá Háskólanum á Bifröst, einleikarapróf frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og háskólagráður í þverflautuleik frá Indiana University í Bandaríkjunum og Royal Northern College of Music í Englandi.
Erla Rún Guðmundsdóttir er forstöðukona Rannsóknaseturs skapandi greina (RSSG). Hún er með meistaragráðu í menningarhagfræði og -stjórnun og er nú doktorsnemi við viðskiptafræðideild HÍ. Hún starfaði áður sem sérfræðingur í menningartölfræði hjá Hagstofu Íslands. Rannsóknir hennar snúa að vinnumarkaði, mælingum og stefnumótun fyrir menningu og skapandi greinar.
María Rut Reynisdóttir er framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar þar sem unnið er að því að efla íslenska tónlist og styðja tónlistarfólk og fyrirtæki á öllum stigum ferilsins, bæði heima og erlendis. María Rut býr yfir meira en 20 ára reynslu víðsvegar úr menningargeiranum. Hún hefur meðal annars gegnt umboðsmennsku fyrir Ásgeir, stjórnað Íslensku tónlistarverðlaununum, gegnt lykilhlutverki í stofnun Tónlistarborgarinnar Reykjavík og stýrt skrifstofu menningarmála hjá borginni. María er með BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og lærði menningarstjórnun hjá hinum brautryðjandi KaosPilot skóla í Danmörku.
R. Michael Hendrix hönnuður, kennari, höfundur og tónlistarmaður búsettur í Reykjavík og stofnandi Huldunóta. Þar aðstoðar hann stofnanir og fyrirtæki við að takast á við breytingar með skapandi nálgun og stefnumiðaðri innsýn. Áður en hann flutti til Íslands gegndi hann stöðu alþjóðlegs hönnunarstjóra (Global Design Director) hjá IDEO.
Þorbjörg Daphne Hall er prófessor við tónlistardeild Listaháskóla Íslands. Þorbjörg leiðir Building Bridges Through Collaboration (Byggjum brýr með samvinnu) sem er þriggja ára rannsóknarverkefni, sem styrkt er af Rannsóknasjóði Vísinda og tækniráðs, sem skoðar starfsemi og aðferðafræði MetamorPhonics sem er dæmi um samfélagsmiðað tónlistarverkefni. Samhliða því vinnur Þorbjörg að rannsókn um íslensku tónlistarsenuna og innviði hennar og rannsóknarverkefni um íslenska jazztónlist (1930-2010) í samvinnu við Ásbjörgu Jónsdóttur. Hún ritstýrði bókinni Sounds Icelandic sem kom út hjá Equinox Publishing 2017 ásamt Nicola Dibben, Árna Heimi Ingólfssyni og Tony Michell. Þorbjörg hefur gefið út greinar og haldið fyrirlestra á alþjóðlegum ráðstefnum um íslenska tónlist, tónlist og þjóðerniskennd, kvikmyndina Heima eftir Sigur Rós og um tónlist í Kristjaníu í Kaupmannahöfn. Hún hefur verið einn af ritstjórum Þráða, tímariti tónlistardeildar LHÍ frá 2016.
Þorvaldur Davíð Kristjánsson lauk BFA-prófi í leiklist frá The Juilliard School í New York árið 2011 og hefur frá árinu 2019 stundað Executive MBA-nám við University of Oxford. Hann er jafnframt alumni frá Balliol College, University of Oxford. Þorvaldur hefur starfað á sviði stjórnsýslu, lista- og menningarmála, menntunar og alþjóðasamstarfs. Hann starfaði hjá Eystrasaltsráðinu (Council of the Baltic Sea States) í Stokkhólmi, þar sem hann var ráðgjafi og síðar forstöðumaður samvinnu og samskiptasviðs. Þar vann hann að verkefnum á sviði svæðisbundins samstarfs, menningar og menntunar og sat jafnframt fyrir hönd ráðsins í Baltic Sea Cultural Heritage Committee. Þorvaldur hefur einnig starfað á sviði lista og skapandi greina hér á landi og erlendis sem leikari, framleiðandi og höfundur. Hann hefur gefið út barnabækur, komið að framleiðslu sjónvarpsefnis og hlotið alþjóðlegar viðurkenningar fyrir störf sín.