Hist Og
Mengi, Óðinsgata 2, 101 Reykjavík Kort
fim 26. nóv 2026 20:00
Tríóið hist og var stofnað í lok árs 2017 til þess að rugla saman reitum raf-og djasstónlistar. Tríóið skipa Eiríkur Orri Ólafsson, sem leikur á trompet, trommuheila og hljómboð, Róberta Andersen á gítar, bassa og hljómborð og Magnús Trygvason Eliassen á trommur og slagverk. Meðlimir tríósins beina stækkunarglerinu að sameiginlegum snertifleti sínum, með innhverfri, úthverfri og slagþungri blöndu af djass, raf-, og spunatónlist sem kemur víða við.
hist og á að baki fjórar plötur, Days of Tundra (2019), hits of (2020), holy ghost of (2023), og Hist Highness (2026). Fyrri þrjár plöturnar hlutu mikið lof og hefur hljómsveitin landað þremur tilnefningum til Íslensku Tónlistarverðlaunanna í djassflokki bæði árin, sem og sæti á Kraumslistanum 2019 og "Spuni Ársins" sama ár hjá Morgunblaðinu. Um hits of skrifaði Arnar Eggert Thoroddsen hjá Morgunblaðinu ma. "Hörkustöff … stimpill þessa ofurtríós kirfilega á öllum smíðum." Allar plöturnar hafa hlotið sæti á Kraumslistanum. Breska tímaritið Jazzwise hafði þetta að segja um tónleika þeirra á Jazzhátíð í ágúst síðastliðnum:
"they are at once thunderous, producing huge walls of sound, and spacey; while also laying down serious grooves. […] They'd go down a storm at a venue like London's Café OTO – let's hope they visit the UK soon."
Meðlimir hist og hafa starfað um árabil með hinum ýmsustu hljómsveitum, svo sem múm, amiinu og Sin Fang, Sigur Rós, Kiru Kiru, Benna Hemm Hemm og Seabear, ásamt ótal samstarfsverkefna á sviði djasstónlistar með ADHD, Hilmari Jenssyni, Skúla Sverrissyni og Mógil.